Slátrun á regnbogasilungi.
föstudagurinn 13. janúar 2017

Starfsmenn HG og dótturfélagsins Háafells hófu fyrir jól slátrun á fyrsta regnbogasilungnum sem settur var í eldiskvíar Háafells í Álftafirði á síðasta ári. Japanskir kaupendur komu í heimsókn fyrir jól til að taka út vöruna og staðfestu kaup en ágætis markaðsaðstæður eru um þessar mundir fyrir regnbogasilung í Asíu. Í dag er unnið að hleðslu fyrstu gámana sem seldir hafa verið til Japans en regnbogasilungur er þar í landi eftirsóttur í m.a. sushi og sashimi rétti. 

Til baka