Hraðfrystihúsið Gunnvör - Tíðindi
Páll Halldórsson hefur látið af störfum sem skipstjóri á togaranum Páli Pálssyni ÍS 102 hjá Hraðfrystihúsinu-Gunnvör, eftir rétt tæplega 60 ára sjómannsferil. Páll kom í land úr síðasta túrnum í dag, 10. júní, en hann hefur stýrt Páli Pálssyni frá árinu 1993.
Páll er fæddur og uppalinn í Hnífsdal og á djúpar rætur í sjómennsku og útgerð á sínum heimaslóðum. Meðal annars var Páll Pálsson, útvegsbóndi í Hnífsdal, föðurafi hans og skipið er einmitt nefnt eftir honum.
Páll hóf sinn sjómannsferil á fimmtánda ári í júní 1965, á 100 tonna stálbáti frá Hnífsdal, sem hét Páll Pálsson og var sá fjórði í röð sex skipa sem báru sama nafn. Hann kom svo víða við á löngum ferli, en var lengi stýrimaður og skipsstjóri á skuttogaranum Gylli ÍS 261 á Flateyri áður en hann tók við Páli.
Páll hefur verið farsæll og fiskinn skipstjóri og segist stíga sáttur frá borði eftir sex áratugi til sjós. Honum hafi alltaf þótt gaman í vinnunni og hann sé hreint ekki orðinn fráhverfur sjómennsku þótt hann sé formlega sestur í helgan stein. Hann geti vel hugsað sér að taka einn og einn túr ef þörf þykir.
„Þeir eru með númerið mitt.“
Stjórnendur og samstarfsfólk hjá Hraðfrystihúsinu-Gunnvör þakka Páli fyrir traust samstarf alla tíð.
„Páll hefur sannarlega verið einn af máttarstólpum samfélagsins okkar, fyrir það ber að þakka.“
Í tilefni af sjómannadeginum vill Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn.
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. hefur undirritað samning um smíði á nýju frystiskipi við skipasmíðastöðina Astilleros Ria de Vigo í Vigo á Spáni. Skipið kemur í stað Júlíusar Geirmundssonar ÍS-270 sem verður 35 ára á þessu ári.
Skipið er hannað  af Verkfræðistofunni Skipasýn ehf. í samvinnu við útgerðina og verður 67,1 metri á lengd og 16 metra breitt, með 3.600 kW MAN-aðalvél. Áætlaður afhendingartími skipsins er síðari hluta árs 2026.
Nýja skipið verður hagkvæmt í rekstri og búið öllum nýjasta tækjabúnaði sem völ er á. Orkunýtni verður mjög góð og byggir á stórri hæggengri skrúfu svipað og er á öðrum togara fyrirtækisins, Páli Pálssyni ÍS-102 og reynst hefur afar vel undanfarin sex ár.
Við hönnun skipsins hefur verið lögð áhersla á góðan aðbúnað og vinnuaðstöðu áhafnar skipsins. Þannig verða öll svefnrými skipverja fyrir einn mann með tilheyrandi aðstöðu. Til að létta störf áhafnarinnar og auka afköst byggir vinnslukerfi skipsins að miklu leyti á sjálfvirkni og verður það m.a. búið flokkurum, sjálfvirkum frystum, afurðahóteli sem flokkar afurðir eftir tegundum og stærðum og búnaði sem pakkar afurðum á bretti og flytur niður í lestar. Einnig verður búnaður til að vinna lýsi úr aukaafurðum um borð í skipinu.
Hraðfrystihusið-Gunnvör hf. gerir út 2 togara, er með fiskvinnslu í Hnífsdal og niðursuðuverksmiðju í Súðavík. Auk þess stundar dótturfyrirtæki félagsins, Háafell ehf. laxeldi í Ísafjarðardjúpi og vinnur núna að stækkun seiðaeldisstöðvar sinnar á Nauteyri við Ísafjarðardjúp.
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. óskar starfsfólki sínu, fjölskyldum þeirra, viðskiptavinum svo og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Með ósk um að nýtt ár verði gæfuríkt og farsælt.
Þann 27. október sl. varð Smári Garðarsson 60 ára. Smári hefur starfað hjá Hraðfrystihúsinu Gunnvör í rúmlega 40 ár.
Við óskum Smára innilega til hamingju með daginn!
Nú á vordögum fékk Páll Pálsson ÍS 102 skemmtilega heimsókn frá ungum krökkum frá leikskólanum Tanga á Ísafirði. Orri Sverrisson tók á móti þeim og sýndi þeim skipið. Krakkarnir voru afar ánægð með heimsóknina og færðu skipinu fallegan trébát sem þau gerðu sjálf og afhentu skipstjórum Páls Pálssonar gripinn.
Í tilefni af sjómannadeginum vill Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn.
Jónatan Ingi Ásgeirsson, afleysingaskipstjóri á Stefni, lét af störfum hjá HG um síðustu áramót eftir áratugalangt starf. Síðustu 12 ár vann hann sem skipstjóri á Stefni en hafði áður starfað sem skipstjóri á rækjutogurnum Andey ÍS 440, Haffari ÍS 430 og á Valnum ÍS 020. Jónatan hefur verið lengi til sjós en hann byrjaði að vinna við það 14 eða 15 ára gamall. Hann hefur því marga fjöruna sopið þegar kemur að fisk- og rækjuveiðum. Við þökkum Jónatani fyrir vel unnin störf undanfarna áratugi og óskum honum velfarnaðar og alls hins besta í framtíðinni.
Jóhannes Helgi Sigurðsson, útiverkstjóri, lét af störfum hjá HG um áramótin síðustu eftir 46 ára starf. Um helming starfstímans vann hann hjá Íshúsfélagi Ísfirðinga hf. og hinn helming starfstímans undir merkjum HG, eftir sameininguna árið 1999. Jóhannes sinnti ýmsum störfum fyrir félagið og var útiverkstjóri frá árinu 2015. Við þökkum Jóhannesi Helga fyrir vel unnin störf undanfarna áratugi og óskum honum velfarnaðar og alls hins besta í framtíðinni
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. óskar starfsfólki sínu, fjölskyldum þeirra, viðskiptavinum svo og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Með ósk um að nýtt ár verði gæfuríkt og farsælt.