Áhöfn og útgerð Júlíusar Geirmundssonar fær gæðaverðlaun ársins 2003 frá Icelandic UK í Bretlandi.
mánudagurinn 12. janúar 2004
Á markaðsfundi 29. desember síðastliðnum veitti Icelandic UK áhöfn
Júlíusar Geirmundssonar ÍS 270 sérstakan viðurkenningarskjöld fyrir
framúrskarandi vöruvöndun við framleiðsluna árið 2003. Áhöfn Júlíusar
var sú eina sem fékk viðurkenningu þetta árið frá Icelandic UK en valið
var byggt á gæðaskoðunum SH-þjónustu á afurðum skipsins auk þess var
einnig tekið tillit til umsagnar kaupenda á markaðnum og hlutfall
framleiðslu fyrir Bretland. Icelandic UK er sölu- og markaðsfyrirtæki
SH í Bretlandi sem sér meðal annars um sölu sjófrystra afurða þar í
landi. Bretland er einn mikilvægasti markaður fyrir sjófrystar þorsk-
og ýsuafurðir frá Íslandi og því mikil hvatning fyrir áhöfn og útgerð
Júlíusar sem byggir mikið á þeim tegundum.