föstudagurinn 21. desember 2007
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. sendir hvorki jólakort né gefur jólagjafir
í ár, en þess í stað ákváðu forráðamenn fyrirtækisins að styrkja
Vesturafl, en það er miðstöð fyrir fólk sem býr við skert lífsgæði.
Nemur styrkupphæðin 300 þúsund krónum.
Kristján G. Jóhannsson
stjórnarformaður afhenti Hörpu Guðmundsdóttur og samstarfsfólki frá
Vesturafli peningagjöfina í hinni árlegu skötuveislu starfsmanna
Hraðfrystihússins - Gunnvarar, sem haldin var í hádeginu í dag. Við það
tækifæri sagði Kristján að Vesturafl hefði unnið mjög gott og þarft
starf og því hefði fyrirtækið ákveðið að styðja við starfsemi þess með
þessum hætti.
Vesturafl er endurhæfing fyrir fólk sem vegna veikinda og/eða annara
tímabundinna aðstæðna býr við skert lífsgæði og getur því ekki tekið
virkan þátt í fjölskyldulífi, vinnu eða samfélaginu.