Bílstjóri óskast
þriðjudagurinn 5. maí 2026

Hraðfrystihúsið – Gunnvör hf. óskar eftir að ráða geðgóðan bílstjóra sem er tilbúinn að vinna af kostgæfni þau störf, sem honum kunna að vera falin. Viðkomandi þarf að geta sinnt tilfallandi yfirvinnu / aukavinnu.

Verkefni og ábyrgð:

Akstur með hráefni, afurðir og aðföng sem og, umsjón og umhirða bifreiða. Aðstoðar útiverkstjóra við útskipanir, landanir og annað tilfallandi. Auk annarra tengdra starfa innan fyrirtækisins. Vinna þarf eftir umhverfis-, öryggis- og gæðastöðlum fyrirtækisins.

Menntunar – og hæfniskröfur:

  • Meiraprófsréttindi og gilt ökuritakort. Æskilegt að viðkomandi sé með vinnuvélaréttindi.
  • Að vera þjónustumiðaður, jákvæður og með góða samskiptahæfni. Jafnframt að geta unnið sjálfstætt, stundvís og áreiðanlegur.
  • Hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar veitir Kristján G. Jóakimsson, gsm 893 1148.

Umsóknir sendist á netfangið ingibjorg@frosti.is fyrir 15. maí n.k.

Til baka