Þekking og reynsla
Frá árinu 1998 hefur verið lögð áhersla á bætta meðferð hráefnis um borð í skipum, sem og í landvinnslu fyrirtækisins. Kæling með ískrapa hefur þar leikið lykilhlutverk og á því sviði hafa verið unnin ýmis þróunarverkefni með Matís og 3X Technology. Aukin vitund skipstjórnarmanna og áhafna skipanna hefur orðið um þá þætti sem hafa áhrif á gæði aflans í veiðarfærum. Við sjálfar veiðarnar, áður en afli er dreginn um borð sem og mikilvægi blæðingar, kælingar og frágang hráefnis í lestum skipanna. Þannig hefur tekist að viðhalda ferskleika og lengja geymsluþol ferskra sem frystra afurða verulega. Jafnframt er rekjanleiki hráefnis tryggður með öflugu skráningarkerfi.