Eignarhaldsfélagið YT ehf. eignast 32,31% hlutafjár í Hraðfrystihúsinu - Gunnvör
mánudagurinn 12. janúar 2004
Með vísan til 27. gr. laga nr. 33/2003 um verðbréfaviðskipti,
tilkynnist það hér með að gengið hefur verið frá kaupum YT ehf. á
32,31% hlutafjár í Hraðfrystihúsinu - Gunnvör hf. Nafnverð hins keypta
hlutafjár nemur alls kr. 217.596.393,- og fóru viðskiptin fram á
genginu 6,4 þann 12. janúar 2004. Kaupverð hlutafjárins nemur því alls
kr. 1.392.616.915,- YT ehf átti ekki hlut í Hraðfrystihúsinu - Gunnvör
hf. fyrir ofangreind viðskipti.
Fréttin á Verðbréfaþinginu.
Fréttin á Verðbréfaþinginu.