Fimmtudaginn 21 febrúar sl. voru 40 ár liðin frá því að skuttogarinn Páll Pálsson ÍS 102 lagðist að bryggju í Hnífsdal í fyrsta skipti. Í tilefni afmælisins hittust sjómenn og makar þeirra, þjónustuaðilar á Ísafirði ásamt stjórnendum Hraðfrystihússins-Gunnvarar í Edinborgarhúsinu í og samglöddust yfir áfanganum.

Kristján Jóhannesson stjórnarformaður HG flutti fróðlegt erindi og Sverrir Pétursson útgerðarstjóri ræddi um för Páls Pálssonar til Hnífsdals frá Japan árið 1973 ásamt því að fara yfir aflatölur og aflaverðmæti skipsins þessi 40 ár. Aflinn á þessum 40 árum er um 163 þús. tonn.Verðmætin eru um 40 miljarðar miðaða við meðalverð hjá Páli 2012. Af þessum 163 þús. tonnum eru um 100 þús. þorskur.

Gestir gæddu sér á veglegum veitingum, rifjuðu upp gamla tíma og gerðu sér glaðan dag.
Margmenni var í Edinborgarhúsinu og gestir ánægðir með góðan dag.

Til baka