Frá störfum næstu vikur af völdum slyss.
miðvikudagurinn 30. maí 2012

Framkvæmdastjóri félagsins, Einar Valur Kristjánsson, verður frá störfum næstu vikur af völdum slyss, sem hann varð fyrir. Einar vill þakka fyrir góðar kveðjur víða að og ítrekar þakkir fyrir snögg viðbrögð björgunarsveita og annarra, sem komu honum til aðstoðar eftir slysið.
Þeim sem þurfa að hafa samband við Hraðfrystihúsið - Gunnvöru er bent á að hafa samband við Helgu Jóakimsdóttur skrifstofustjóra (helgaj@frosti.is) eða Kristján G. Jóakimsson, vinnslu- og markaðsstjóra (kgj@frosti.is)

m.b.k. Kristján G. Jóhannsson

Til baka