Ný spil í Stefni ÍS-28
fimmtudagurinn 9. janúar 2003
Stefnir kom til Ísafjarðar á miðvikudaginn eftir um mánaðar dvöl í Hafnarfirði.
Framtak og Naust Marine sáu um að skipta gömlu vindunni út fyrir nýjar frá Ibercisa
á Spáni. Settar vöru í skipið tvær splittvindur auk tveggja gilsavinda og stjórnkerfis.
(Auto-trolls) Gamla vindan var orðin um 24 ára gömul og þess má geta að upphafleg
notaði Stefnir hlera sem vógu um 1000 kg en notar núna hlera sem vega um 4000
kg auk þessa hafa veiðarfærin stækkað til muna. Stefnir heldur til veiða í kvöld.