Nýr vinnslubúnaður í Hnífsdal
föstudagurinn 22. desember 2006
Í vikunni var tekin í notkun í landvinnslu Hraðfrystihússins-Gunnvarar
í Hnífsdal ný flæðilína frá Marel ásamt ýmsum öðrum búnaði sem er að
hluta til smíðuð af Ísfirskum fyrirtækjum og sett upp af starfsmönnum
Marel á Ísafirði. Flæðilínan mun gera landvinnsluna samkeppnishæfari í
hinni hörðu samkeppni sem ríkir í greininni. Afkoma fiskvinnslunnar
hefur farið batnandi að undanförnu í takt við jákvæða þróun gengis
krónunnar að undanförnu.