Bolfiskvinnsla í Hnífsdal og á Ísafirði
Framleiðsla bolfiskvinnslunnar við Hnífsdalsbryggju í Hnífsdal byggist að mestu á vinnslu úr fersku hráefni, aðallega þorski. Í tengslum við vinnsluna í Hnífsdal fer einnig fram lausfrysting og pökkun frystra þorskafurða sem og aukategunda í Íshúsfélagshúsinu á Ísafirði. Starfsmannafjöldi er um 65 manns af ýmsum þjóðernum. Í landvinnslunni í Hnífsdal eru framleiddar ferskar, frystar og léttsaltaðar og frystar afurðir fyrir markaði bæði í Evrópu og Ameríku. Afurðaflokkarnir til viðbótar við ferskar afurðir eru bæði lausfrystar og pönnufrystar sem ýmist eru heil flök eða flakahlutar. Bolfiskvinnslan nýtur góðs af landfræðilegri legu nálægt gjöfulum bolfiskmiðum og landa togskip fyrirtækisins hráefni að jafnaði þrisvar sinnum í viku til vinnslunnar.
Helstu afurðaflokkar eru:
Niðursuða í Súðavík
Í Súðavík er starfrækt niðursuða á þorsklifur þar sem uppistaðan í hráefninu kemur af eigin skipum en einnig frá öðrum aðilum á norðanverðum Vestfjörðum. Við framleiðsluna í Súðavík starfa um 10 manns allt árið um kring og er framleiðslan að mestu seld inn á Evrópumarkað.
Helsti afurðaflokkur er: