föstudagurinn 22. desember 2006
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. sendir hvorki jólakort né gefur jólagjafir
í ár, en þess í stað ákváðu forráðamenn fyrirtækisins að styrkja VÁVEST
hópinn, en það eru samtök fólks á Vestfjörðum sem vinna að forvörnum í
fjórðungnum. Nemur styrkupphæðin 300 þúsund krónum.
Einar Valur
Kristjánsson framkvæmdastjóri afhenti Hlyni Snorrasyni og
samstarfsfólki frá VÁVEST hópnum peningagjöfina í hinni árlegu
skötuveislu starfsmanna Hraðfrystihússins-Gunnvarar, sem haldin var í
hádeginu í dag. Við það tækifæri sagði Einar Valur að VÁVEST hefði
unnið mjög gott og þarft starf á undanförnum árum og því hefði
fyrirtækið ákveðið að styðja við starfsemi hópsins með þessum hætti.
VÁVEST hópurinn hefur unnið að forvörnum og vímuvarnarmálum
ungmenna á Vestfjörðum undanfarin ár með góðum árangri og hefur
starfsemi hópsins vakið þjóðarathygli.