Afli togara Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf, var 15.760 tonn árið 2021 samanborið við 14.558 tonn árið áður. Aflaverðmæti togaranna nam 4.660 milljónum samanborið við 4.114 milljónum árið áður.
| 2021 | 2020 | |||
| Afli (tonn) | Verðmæti (milljónir) | Afli (tonn) | Verðmæti (milljónir) | |
| Júlíus Geirmundsson | 5.726 | 2.162 | 4.838 | 1.951 |
| Stefnir | 4.388 | 1.128 | 3.996 | 913 |
| Páll Pálsson | 5.646 | 1.370 | 5.724 | 1.250 |
| Samtals | 15.760 | 4.660 | 14.558 | 4.114 |
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf óskar starfsfólki sínu, fjölskyldum þeirra, viðskiptavinum svo og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Með ósk um að nýtt ár verði gæfuríkt og farsælt.
Háafell ehf, dótturfyrirtæki Hraðfrystihússins- Gunnvarar hf., hefur fest kaup á sínum fyrsta fóðurpramma en um er að ræða pramma af gerðinni AC450Comfort frá AKVA group. Pramminn verður tekin í notkun næsta sumar í Skötufirði í Ísafjarðardjúpi en þar verður fyrsti árgangur af laxi frá Háafelli.
-Við höfum 20 ára reynslu af eldi á þorski og regnbogasilungi og erum nú loksins að byrja með langþráð laxeldi í Ísafjarðardjúpi. Með nýju leyfi fyrir 6.800 tonna lífmassa af laxi, og fjárfestingu í fyrsta fóðurpramma félagsins höfum við tekið mikilvæg skref í að byggja upp fyrirtækið. Við erum mjög ánægð með að hafa náð samkomulagi um afhendingu á vel útbúnum fóðurpramma innan takmarkaðs tímaramma, en við teljum AKVA group traustan og samkeppnishæfan birgja, segir Gauti Geirsson, framkvæmdastjóri Háafells.
Fóðurpramminn verður með landtengingu og þannig knúinn af endurnýjanlegri orku.
-Það er mjög ánægjulegt að Háafell velur AKVA group sem birgja. Við höfum fylgst með þessu fyrirtæki í langan tíma og ég er mjög ánægður með að þeir séu nú að hefja nýjan kafla í fiskeldi sínu. Með AC450Comfort fóðurpramma fær Háafell mjög góða lausn með allri þeirri aðstöðu og búnaði sem þarf til að ná góðum rekstri, segir Roar Ognedal, sölustjóri Akvagroup
Nýi pramminn verður sá ellefti í röðinni frá AKVA group á Íslandi.
Jákvæðar niðurstöður tveggja starfsmanna HG úr hraðprófum hafa verið staðfestar af sóttvarnaryfirvöldum með PCR prófi. Frekari úrvinnsla málsins er því nú í höndum sóttvarnaryfirvalda. Þessi reynsla af hraðprófum hjá HG virðist styðja að þau geta verið eitt af verkfærunum í því að hægt sé að finna smit og bregðast þannig fyrr við með markvissum aðgerðum og sporna gegn útbreiðslu veirunnar.
Starfsmenn HG verða upplýstir frekar um gang mála eftir því sem málinu vindur fram.
Með hraðprófi fyrir Covid-19 sýkingu greindist skipverji á Páli Pálssyni ÍS jákvæður í dag. Beðið er niðurstöðu úr PCR prófi sem væntanleg er á morgun, föstudag. Þar til niðurstaða liggur fyrir er áhöfnin í sóttkví. Á sama hátt hefur annar starfsmaður í landi einnig verið greindur jákvæður með hraðprófi og hluti starfsfólks farið í sóttkví þar til niðurstaða liggur fyrir úr PCR greiningu á morgun. Af þeim sökum verður skrifstofa fyrirtækisins í Hnífsdal lokuð á morgun.