Mikið happaskip – Borið að landi 135 þúsund tonn að verðmæti 50 milljarðar króna
Þann 10. nóvember 2019 eru þrjátíu ár frá því að frystitogarinn Júlíus Geirmundsson ÍS 270 kom fyrst til heimahafnar á Ísafirði. Forsaga þess er að Gunnvör hf. samdi árið 1987 við skipasmíðastöðina Gryfia í Stettin i Póllandi um smíði á skuttogara eftir teikningu Ísfirðingsins Bárðar Hafsteinssonar skipaverkfræðings hjá Skipatækni hf. Eigendur Gunnvarar hf. þekktu vel til hans þar sem eitt fyrsta verkefni hans sem skipaverkfræðings var eftirlit með byggingu fimm skuttogara fyrir Vestfirðinga í Flekkefjord í Noregi á árunum 1971-1974.
Stífar reglur giltu um endurnýjun skipa á þessum árum og til að fá veiðileyfi á nýtt skip þurfti að taka annað úr rekstri. Leyft var að nýju skipin væru 33% stærri en þau gömlu og var nýi togarinn hannaður með tilliti til þessara reglna. Eldri Júlíus (III) þurfti því að hverfa úr rekstri hér á landi til að veiðileyfi fengist á nýja skipið. Það fór þó svo að Síldarvinnslan hf. á Neskaupstað festi kaup á skipinu og var það nefnt Barði NK. 120. Tók Gunnvör hf. gamla Barða NK 120 upp í kaupin en það var mun minna skip smíðað í Póllandi árið 1975.
Frystitogarinn Júlíus Geirmundsson ÍS 270 (IV) kemur í fyrsta sinn til heimahafnar á Ísafirði (myndasafn H-G hf)
Samningurinn við pólsku skipasmíðastöðina var með öðru sniði en vant var, hún sá um smíði skrokksins, en Gunnvör hf. lagði til mest allan búnað. Þetta kom til m.a. vegna þess að þjóðfélagið í Póllandi var mjög lokað á þessum árum, strangar reglur um gjaldeyrisviðskipti og skriffinnska mikil. Á þessu slaknaði mjög á byggingartíma skipsins og allt orðið mun frjálsara þegar það var afhent, enda þá einungis átta dagar í fall Berlínarmúrsins.
Í fyrstu var gert ráð fyrir að skipið yrði ísfisktogari með möguleika á að heilfrysta afla, en á byggingartímanum var ákveðið að breyta því í flakafrystiskip.
Nýr Július Geirmundsson ÍS 270, sá fjórði með því nafni, kom til heimahafnar á Ísafirði 10. nóvember 1989 eins og áður sagði og að venju var gerð ítarleg grein fyrir komu þess í blöðum. Í Morgunblaðinu 12. nóvember birtist eftirfarandi:
Verksmiðjuskipið Júlíus Geirmundsson ÍS 270 kom til Ísafjarðar á sl. föstudag. Skipið hefur vinnslugetu á við lítið sjávarþorp, en við það starfa einungis 27 menn, 25 um borð og 2 á skrifstofu í landi. Skipið fer til veiða í næstu viku, en það á um 1000 tonna kvóta á þessu ári. Það var skipasmíðastöð í Stettin í Póllandi sem smíðaði skipið en Skipatækni hf. hannaði.Vinnslulínur eru að mestu danskar og þýskar, en vogir eru frá Pólstækni á Ísafirði. Framleitt er undir eigin nafni, Julius Brand, og selt er beint á erlenda markaði.
Að sögn Kristjáns Jóhannssonar útgerðarstjóra skipsins, er það 1.403 brúttótonn eftir nýju mælingunni, 57,5 metrar á lengd, 12 metra breitt og hefur meðaldjúpristu upp á 5 metra.Vélin er 3.342 hestafla, Wärtsilä, vindur frá Brusseles, tölvutrollstýribúnaður frá Rafboða, frystibúnaður frá Söby og fiskvinnsluvélar frá Baader.
Fiskurinn er fullunninn um borð og er afkastageta um 42 tonn af fullunnum afurðum á sólarhring, en það jafngildir um 100 tonna afla upp úr sjó. Á venjulegum skuttogara af þessari stærð eru um 15 menn i áhöfn þannig að aðeins er bætt við 10 mönnum til að fullvinna veiðina.
Kaupverð skipsins er 470 milljónir króna. Skipstjóri á Júlíusi er Hermann Skúlason, yfirvélstjóri Þorlákur Kjartansson og 1. stýrimaður Ómar Ellertsson. – Úlfar (Morgunblaðið 12. nóvember 1989, bls. 2)
Gunnvör hf. og Hraðfrystihúsið hf. í Hnífsdal sameinuðust árið 1999 undir nafninu Hraðfrystihúsið – Gunnvör hf. og hefur Júlíus Geirmundsson verið gerður út af því síðan. Alla tíð hefur útgerð skipsins gengið vel og á þessum þrjátíu árum, út hefur það fært að landi um 135 þúsund tonn og má áætla að verðmæti þess afla á verðlagi ársins 2019 sé um 50 milljarðar króna.
Áhöfn Páls Pálssonar ÍS 102 hlaut á dögunum viðurkenningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg fyrir að hafa sýnt fremur góða öryggisvitund á námskeiðum Slysavarnarskóla sjómanna.
Skipstjóri er Páll Halldórsson en Sigríður Inga Pálsdóttir tók á móti viðurkenningunni fyrir hönd áhafnarinnar.
Jón Svanberg Hjartarson framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar afhenti viðurkenninguna sem er farandbikar til varðveislu í eitt ár ásamt veggskildi til eignar
Fyrir skömmu síðan lagði togskipið Ísborg ÍS 250 af stað áleiðis til Belgíu með vélbátinn Heru ÞH í togi, en skipin hafa verið seld til niðurrifs. Hera var byggð í Flekkefjord í Noregi árið 1962 fyrir Gunnvöru hf. á Ísafirði og bar nafnið Guðrún Jónsdóttir ÍS 267. Var hún gerð út frá Ísafirði á árunum 1963-1971 á línu, net, síld og botnvörpu undir farsælli stjórn Vignis Jónssonar, Hermanns Skúlasonar og Guðjóns Arnars Kristjánssonar Bar skipið mikinn afla að landi á þeim tíma og sem dæmi um það var afli þess árið 1964 alls 5.200 tonn. Skipið þótti stórt og efuðust margir um að raunhæft væri að gera út slíkt skip frá Ísafirði, en reyndin varð sú að skipum af þessari stærð og þaðan af stærri átti eftir að fjölga mikið á næstu árum.
Nú á Gunnvör hf. í smíðum í Noregi 150 – 170 smál. stálskip, sem bætist við fiskiskipaflotann hér í bænum fyrir eða um næstu áramót. Ber þetta framtak vissulega vott um stórhug og dugnað. (Blaðið Ísfirðingur, 4. apríl 1962, bls. 1)
Guðrún Jónsdóttir ÍS 267 nýkomin til heimahafnar á jólum 1962
Guðrún bar nafn móður tveggja eigenda Gunnvarar hf., bræðranna Jóhanns og Þórðar Júlíussona og frá upphafi var mynd af henni um borð í skipinu og fylgdi því alla tíð. Nokkru áður en skipið lagði í ferðina til Belgíu færði eigandi þess, Arnar Kristjánsson útgerðarmaður, Kristjáni syni Jóhanns myndina til varðveiðslu.
Arnar Kristjánsson (t.h.) afhendir Kristjáni Jóhannssyni (t.v.) myndina af Guðrúnu Jónsdóttur
Á árinu 2018 öfluðu skip félagsins 13.177 tonna að verðmæti 3.129 milljóna króna samanborið við 10.611 tonna afla að verðmæti 2.472 milljóna króna árið 2017. Aflamagn jókst um 24% og aflaverðmæti um 26,6%.
2018 | 2018 | 2017 | 2016 | |
---|---|---|---|---|
Tonn | Milljónir | Milljónir | Milljónir | |
Samtals | 13.177 | 3.129 | 2.472 | 3.131 |
Júlíus Geirmundsson | 5.168 | 1.572 | 1.412 | 1.467 |
Páll Pálsson 1274 gamli | 231 | 869 | ||
Páll Pálsson 2904 nýi | 2.589 | 496 | ||
Stefnir | 5.305 | 1.027 | 793 | 719 |
Valur og Örn | 115 | 34 | 36 | 76 |
Tímamót hafa orðið í sögu HG, starfsmanna þess og íbúa hér við Djúp á árinu sem er að líða.
Staða fiskeldismála
Eftir 16 ára uppbygginarskeið í fiskeldi er svo komið að dótturfyrirtækið Háafell er ekki með neinn fisk í sjókvíum í Ísafjarðardjúpi. Þrátt fyrir að framleiða heilbrigð og hraust laxaseiði á Nauteyri höfum við þurft að láta þau frá okkur vegna stöðu leyfismála sem velkjast um í stjórnkerfinu. Því miður hefur það leitt til uppsagna á reynslumiklu og góðu starfsfólki sem mikil eftirsjá er að.
Vonir voru bundnar við endurskoðun áhættumats erfðablöndunar sem forstjóri Hafró hafði boðað þegar „sól stæði hæst á lofti“. Sumarsólstöðurnar urðu þó ekki fyrr en 5. júlí. Ekki var staðið við endurskoðun matsins en tilkynnt að óskað yrði eftir samstarfsaðilum um eldi á 3.000 tonnum af laxi í Djúpinu. Átti auglýsing í þá veru að birtast í lok ágúst, það stóðst ekki. Háafell fékk þá upplýsingar um að auglýst yrði í október, það stóðst ekki heldur. Síðan þá hefur forstjóri Hafró ekki séð ástæðu til þess að svara fyrirspurnum Háafells um málið þrátt fyrir ítrekaðar óskir .
Samfélögin við Djúp eru því í gíslingu Hafró og stjórnsýslunnar og á meðan koðna niður réttmætar væntingar til uppbyggingar atvinnulífs á svæðinu. Er það því einlæg ósk okkar að stjórnmálamenn muni á nýju ári setja strangar og skýrar reglur um fiskeldi sem hægt verður að vinna eftir og treysta á. Óvissan er okkar versti óvinur.
Nýr Páll Pálsson
Þrátt fyrir mótlæti í uppbyggingu fiskeldis er vert að gleðjast yfir komu nýs ísfisktogara fyrirtæksins. Nýr og glæsilegur Páll Pálsson ÍS 102 sigldi inn Djúpið þann 5. maí og tók fjölmenni á móti áhöfninni eftir langa siglingu frá Kína. Aðstaða um borð er til fyrirmyndar, við hönnun skipsins var sérstaklega horft til orkusparnaðar og mikil áhersla er lögð á góða meðferð á afla til þess að hámarka gæði. Með meiri kröfum og harðari samkeppni er nauðsynlegt að hafa bestu tæki sem völ er á. Þannig tekst okkur að laða til okkar hæfasta starfsfólkið og framleiða vörur í hæsta gæðaflokki. Vil ég við þetta tækifæri þakka kærlega fyrir allar þær árnaðaróskir og kveðjur sem okkur bárust vegna þessara tímamóta.
Útvegurinn í forystu
Veiðar og vinnsla hafa gengið vel á árinu enda ástand fiskistofna við Íslandsstrendur almennt gott. Sem dæmi fór aflaverðmæti á Stefni ÍS í fyrsta sinn yfir milljarð á almanaksárinu en aflinn var 5.250 tonn. Sjálfbær nýting og góð umgengni við auðlindir eru lykilatriði fyrir sjávarútvegsfyrirtæki í dag, hvort sem er í villtum fiskistofnum eða eldisfiski.
Plastmengun, súrnun sjávar og losun gróðurhúsalofttegunda eru allt hættur sem steðja að sjálfbærri nýtingu ef ekki verður brugðist við. Sjávarútvegurinn hefur tekið af skarið og er í forystu á Íslandi í því að minnka olíunotkun. Frá árinu 1990 hefur olíunotkun á Íslandi aukist um 57% en í sjávarútvegi hefur hún dregist saman um 46%. Slíkur árangur næst til dæmis vegna fjárfestinga í sparneytnari skipum eins og Páli Pálssyni þar sem væntingar eru um að losun á hvert veitt kíló af fiski verði tugum prósenta minni en á fyrirrennara hans.
Starfsmönnum okkar þakka ég samfylgdina á árinu sem er að líða og óska þeim og landsmönnum öllum velfarnaðar á nýju ári.
Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri HG.