miðvikudagurinn 12. október 2005
Síðastliðinn föstudag þann 7. október voru 50. ár liðin frá stofnun
Gunnvarar hf á Ísafirði. Stofnendur félagsins voru þau Jóhann
Júlíusson, Margrét Leós, Þórður Júlíusson, Bára Hjaltadóttir, Jón B.
Jónsson og Helga Engilbertsdóttir.
Í tilefni dagsins var opnuð sýning í Safnahúsinu á Ísafirði, á
sýningunni er greint frá sögu Gunnvarar hf auk þess sem sögu
sjávarútvegs á Ísafirði á þessum tíma eru gerð góð skil. Einnig er
starfsemi Hraðfrystihússins-Gunnvarar í nútímanum gerð góð skil.
Í tilefni þessara tímamóta ákvað stjórn Hraðfrystihússins-Gunnvarar hf
að veita styrki til mikilvægra mála í samfélaginu alls að upphæð kr.
3.000.000,- sem skiptist þannig: Söfnun til kaupa á sneiðmyndatæki sem
staðsett verður á sjúkrahúsinu á Ísafirði kr. 1.500.000,-
Björgunarfélag Ísafjarðar til tækjakaupa kr. 500.000,- Tónlistafélag
Ísafjarðar, flygilssjóður kr. 250.000,- Ísafjarðarkirkja, Altaristafla
kr. 250.000,- Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar kr. 250.000,- Safnahúsið
á Ísafirði til tækjakaupa kr. 250.000,-
Sýningin verður opin almenningi næstu vikur á opnunartíma safnsins, veg
og vanda af uppsetningu sýningarinnar höfðu sagnfræðingarnir Guðfinna
Hreiðarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir.